sjúkraliðinn bullar

Lára bullar í dk

23.01.2009 08:12:45 / sjukralidinn

Ein ég sit og.................

hef löppina upp í loft. Skellti mér til Tönder í síðustu viku og hitti einhvern doksa sem skar og sagaði í fótinn minn:( það gekk nú allt saman vel, fyrstu dagarnir voru slæmir en síðan skánaði þetta. Ég reikna með að fara að vinna 11 feb sem er náttúrulega bara illa skipulagt þar sem á á að vinna þá um helgina og þorrablótið er þá helgi. Kallinn er í nefndinni og er bara aldrei heima hjá sér.
Snúðurinn litli hefur það gott búinn að missa fleirri tennur og er að fá tvo 6 ára jaxla.

maður er voða tómur í hausnum þegar maður er búinn að vera inni í  10 daga og næstum því ekki séð fólk allan þann tíma en það hlýtur að lagast einhvern tíma, á víst von á eðalfrúm í kaffi á eftir þannig að heilastarfsemi kemst vonandi í gang.
knus til ykkar

» 5 hafa sagt sína skoðun

23.12.2008 13:15:30 / sjukralidinn

jólahvað

Halló þið öll

Gleðileg jól og gott og farsællt komandi ár
knus frá Sönderborg


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.12.2008 07:56:41 / sjukralidinn

já er á lífi

svona ef einhver skyldi efast um það :lol:

Alltaf nóg að gera og síðan síðast er þasviðaveislan yfirstaðinn, búin að fara í svaka fína útskriftarveislu hjá Hrund og Helgu, búin að kveðja Helgu og Palla, :cry: alveg óþolandi þegar fólk er að flytja í burtu. það fer alltaf smá bútur af hjartanu með.
jólaundirbúningur á fullu og það er voðalega skrýtið að þurfa ekki að vera að kaupa jólagjafir nú í desember, löngu búin með flest allar og þær voru komnar til íslands í október.
Þetta verða vinnu jól og áramót hjá mér er að vinna 25, 26, 31 des og 1 jan og einhverja daga þar á milli líka.
Kallarnir mínir að byrja í jólafríi, Þórður búinn í skólanum í síðustu viku og fór náttúrulega beint að vinna, Gummi að vinna í dag og svo næst 5 jan, Tristan síðati skóladagur á morgun og svo 5 jan.

Jæja þá er komið smá lífsmark og vonandi að einhver hafi mig ennþá á sínum bloggrúnti og reki inn nefið og skilji eftir lífsmark :lol:

knus til ykkar sem gera það

» 1 hafa sagt sína skoðun

11.11.2008 09:17:39 / sjukralidinn

Danmörk


Jæja náttúrulega löngu komin heim frá íslandi. Það var voða fínt að skreppa svona aðeins þangað og hitta fjöldskylduna. Vinirnir sátu á hakanum núna og verða bara að sætta sig við það. Lofa betrun næst

Vinnan gengur sinn vanagang er næstum því alltaf í fríi 8) Var í 12 daga fríi í oktober vann svo í eina viku og fór í vikufrí vann 3 daga og 2 daga frí og svo vinn ég í 2 daga og 3 daga frí vinn svo eitthvað smá og fer í viku frí þ.e. viku 49. Var að skoða þetta og í okt vann ég 14 vaktir í nóv vinn ég 14 vaktir og í des vinn ég 14 vaktir svo kemur jan og fyrstu 22 dagana þar vinn ég 16 vaktir gengur bara ekki að vinna svo margar.:d

Það er alltaf brjálað að gera hjá litlu familiunni, við erum búin að vera að breyta hérna hjá okkur og erum ekki búin.
Um helgina er sviðaveisla og mig  vantar að finna pössun fyrir snúðinn, hef nú reyndar engar áhyggjur af því.

Stefnan er sett á köben eina helgi í des

knus á línuna

» 6 hafa sagt sína skoðun

13.10.2008 06:33:08 / sjukralidinn

Ísland á morgun

Jæja langt síðan að það hefur verið bloggað og getum við víst bara kennt tímaleysi og leti um það.
Núna er ég komin í 12 daga frí en það verður samt ekki bloggað mikið í því fríi. Er mjööööööööööööööööööööööööööööööööööööög upptekin kona.
veit eiginlega ekki hvað ég á að skrifa núna, er í sykursjokki eftir helgina. Var bara í 3 barnaafmælum og þvílíkar kræsingar á öllum stöðum. Segi bara takk fyrir mig og öll grömmin sem bættust á mig.
Meira er það ekki í dag.

knus

» 5 hafa sagt sína skoðun

05.10.2008 15:02:29 / sjukralidinn

Svar til Lindu

Zeturnar kosta frá 69,95 og upp í svona 3-400 krónur ( danskar að sjálfsögðu)

» 1 hafa sagt sína skoðun

26.08.2008 10:23:16 / sjukralidinn

uha

Jæja þá er víst kominn tími á smá blogg er það ekki?

Núna getur maður aðeins andað léttara helgin búin.
Þetta var mikið mikið að gera og gerast helgin.
á föstudaginn var ég að baka og þrífa og svoleiðis skemmtilegheit. Um kvöldið fórum við á kulturnat og hittum fullt af fólki sem við þekkjum, vantaði reyndar nokkra sem við erum vön að hitta á þessu kvöldi en þetta er jú stórt svæði og maður getur ekki séð alla.
Eftir flugeldasýninguna lögðu við af stað heim en það gekk hálfhægt bæði þurftum við heilsa upp á fólk og svo var umferðarteppa allstaðar þar sem hlaupið var í gangi. en heim komust við og þessi sem sagðist vera hálfsex ára var drifinn í rúmið og foreldrarnir heldu aðeins áfram að undirbúa laugardaginn.

Hér var vaknað snemma og klárað að græja hlutina og kl 10 byrjuðu gestirnir að streyma í 6 ára afmælið hjá prinsinum, hingað komu 13 börn og 11 fullorðnir + við 3. Mikið fjör og mikið borðað. Síðustu gestir fóru um kl 15:30 og það þurfti aðeins að ganga frá áður haldið var af stað í næsta afmæli hjá henni Dagný Evu sem var 5 ára þennan dag. Verst að maður var frekar saddur þannig að ég gat ekki smakkað allar flottu kökurnar og kræsingarnar hjá Dísu meistarabakara og brauðréttasnilling. Fékk bara litla sneið af gulrótarkökunni :( Ekki var stoppað lengi þarna því að þriðja afmælið hófst kl 18 og við þurftum að skutla prinsinum í pössun hjá Hrund og Steina sem eru alltaf til í að passa hann (takk æðislega) farið heim skift um föt og labbað í fimmtugs afmæli hjá Guðrúnu. Þar var mikið gaman, æðislegur matur og frábær félagsskapur.

Sunnudagur tiltekt og fara með prinsinn að versla fyrir afmælispeningana og því sem hann var búinn að safna sér, flott að sjá hann versla sjálfur Nintendo Wii.

mánudagur vinna, þreytt
þriðjudagur heima, þreytt, þrífa, tölvast.

En allir sem ég hitti um helgina takk fyrir góða helgi og komuna og drenginn og skemmtunina.

Eitt er þó víst að aldrei aftur 3 afmæli sama daginn ;)

knus

p.s  gleymdi einu, prinsinn missti fyrstu tönnina á laugardaginn semsagt á afmælisdaginn og sú næsta fór aðfaranótt mánudags.

» 11 hafa sagt sína skoðun

19.08.2008 11:49:38 / sjukralidinn

ER Á LÍFI

Og lofa að blogga bráðum, bara búiða að vera voooooooooooooða mikið að gera og svo vill karlinn stundum nota skjáinn á kvöldin ( held að hann haldi að hann eigi skjáinn og ég kitchen aidina)

» 1 hafa sagt sína skoðun

16.07.2008 14:00:30 / sjukralidinn

Ritstífla

Sem bloggari hlýtur maður að geta fengið ritstíflu eins og flestir frægir rithöfundar, þannig að nú þjáist ég af ritstíflu.
:
:
:
:
:
:
:
:
:
:
:
:
:
:
:

Mikið að gera er með gest (aupair) hana Betu. Smári kom líka í heimsókn

Djammaði mikið um helgina, ringrider bæði föstudag og laugardag, Fór  út að borða með vinnufélögum á föstudaginn og svo á ringrider, upplifði life sex show þar, voða gaman ;)
Fór svo á laugardeginum í mat hjá Guðrúnu og Alla og þar voru líka Einar og Stína og Ragga og Carsten + mitt fólk, síðan á ringrider.
Sunnudagur tekinn snemma, farið og horft á optogið og svo seinni partinn skellum við okkur á ringrider þar sem ég verslaði með 2 stk töskur.
Um kvöldið' kíkti Stína í heimsókn og svo voru vaktaskipti hjá þeim hjónum þar sem Einar kíkti 10 mín, eftir að Stína fór.
Mánudagur fór í vinnu
Þriðjudagur afmælisgjafakaup og svo í afmæli hjá Einari. Um kvöldið var aupairin að passa og við fórum á rúntinn og til Guðrúnar og Billa.
Í dag þvottadagur og Ragga kom í heimsókn.
Skrifað hér og hjá Tristani, voða dugleg ( tek alveg á móti hrósi)
Vinna næstu 4 daga og svo sumarfrí í 2 vikur.

knus

» 4 hafa sagt sína skoðun

09.07.2008 13:31:10 / sjukralidinn

í dag

NautNaut: Of fá verðlaun í lífi þínu hafa leitt til þunglyndis. Þú hefðir gott af smá dekri. Skrifaðu lista og byrjaðu að njóta alls sem lífið býður upp á - stórt sem smátt.

» 0 hafa sagt sína skoðun

07.07.2008 15:29:20 / sjukralidinn

störnuspáin í dag

Naut: Vinnan þín hjálpar fólki og þess vegna vinnur þú. Að einhver þarfnist þín er hið mesta mögulega hól. En þú munt ekki sóa tíma í að verðlauna sjálfan þig.

» 1 hafa sagt sína skoðun

04.07.2008 09:56:15 / sjukralidinn

Markaðssetning

MARKAÐSSETNING MEÐ ÖLLU TILHEYRANDI.

Fólk biður oft um útskýringu á ?markaðssetningu.? Jæja hér kemur hún:


*Þú sérð flottan mann í partýi. Þú ferð upp að honum og
segir, ?Ég er frábær í rúminu.?
Þetta er bein markaðssetning.


*Þú ert í partýi með fullt af vinum og sérð flottan mann. Einn af vinum
þínum fer upp að honum,bendir á þig og segir, ?hún er frábær í rúminu.?
Þetta er auglýsing.


*Þú ert í partýi og sérð flottan mann. Þú labbar upp að honum, færð
símanúmerið hans, hringir í
hann daginn eftir og segir, ?Hæ, ég er frábær í rúminu.?
Þetta er símamarkaðsetning.


*Þú ert í partýi og sérð flottan mann, þú lagar til fötin þín, labbar upp
að honum og réttir honum
glasið þitt og segir við hann, ?Fyrirgefðu, má ég?? Lagar bindið hans,
nuddar brjóstunum létt
utan í hann og segir, ?Ó á meðan ég man, ég er frábær í rúminu.?
Þetta eru almannatengsl.


*Þú ert í partýi og sérð flottan mann. Hann labbar upp að þér og segir,
?Ég hef heyrt að þú sért frábær í rúminu.?
Þetta er þekkt vörumerki.


*Þú ert í partýi og sérð flottan mann. Hann langar í þig en þú færð hann
til að fara heim með vinkonu þinni.
Þetta er söluorðspor.


*Vinkona þín getur ekki fullnægt honum, svo hann hringir í þig.
Þetta er tækniaðstoð.


*Þú ert á leið í partý þegar þú uppgötvar að það gætu verið flottir menn í
öllum þessum húsum sem þú ert að labba framhjá.
Svo þú klifrar upp á þakið á einu af þessum húsum, sirka í miðjunni og
öskrar úr þér lungun, Ég er frábær í rúminu.?
Þetta er ruslpóstur


» 2 hafa sagt sína skoðun

16.06.2008 16:35:16 / sjukralidinn

Fékk þetta sent í dag

Sumarbros

Þegar ég var yngri, vóg ég nokkrum kílóum minna. Ég þurfti aldrei að halda
maganum inni þegar ég fór í þröngan kjól

En nú, þegar ég er orðin eldri, hefur líkami
minn brotist til frelsis. Og
um þann hluta hans sem einu sinni var mitti, eru þægileg teygjanleg efni.

Ítölsku skórnir þurfa að vera tveim númerum stærri en áður, ef ég kem þá
fótunum yfirleitt í þá, og skrefbótin á sokkabuxunum sígur allt of oft
niður undir hné.

En ég hef einnig lært að það skiptir engu máli hvað gerist, eða hversu
dimmt virðist yfir öllu í dag. Lífið heldur áfram og á morgun kemur betri
dagur.

Ég hef lært, að það segir mikið til um manneskjuna hvernig hún bregst við
þessum þremur hlutum
1. Rigningardegi
2. Týndum farangri
3. Flæktu jólatrésskrauti

Ég hef lært, að óháð því hvernig samband okkar er við foreldra okkar, komum
við til með að sakna þeirra, þegar þau eru horfin á braut.

Ég hef lært, að það að verða sér úti um peninga og hluti, er ekki það sama
og að skapa sér líf.

Ég hef lært, að af og til býður lífið okkur upp á annað tækifæri.

Ég hef lært, að maður getur ekki farið í gegnum lífið með hornabolta-hanska
á báðum höndum. Öðru hvoru verðu maður líka að gefa boltann til baka.

Ég hef lært, að þegar ég ákveð eitthvað beint út frá hjartanu, þá hef ég
yfirleitt hitt á hina einu réttu ákvörðun.

Ég hef lært, að þó að ég sé sár, þurfi ég ekki að særa aðra.

Ég hef lært, að á hverjum degi eigi maður að rétta öðrum höndina. Allir
þurfa hlýjar hugsanir og vinalegt klapp á axlirnar.

Ég hef lært, að ég er alltaf að læra eitthvað nýtt.

Ég hef lært, að það sem þú segir og gerir vill gleymast, en fólk gleymir
ekki hvernig þú lætur því líða.

Sendu þessa orðsendingu til að minnsta kosti fimm frábærra kvenna í dag og
eitthvað gott verður á vegi þínum... Þú hefur í það minnsta sagt öðrum
konum að þér finnst þær frábærar, og kannski færðu þær til að brosa.

En ef þú ekki gerir þetta... þá bilar rennilásinn og sokkabuxurnar rúlla
niður á hæla, þangað sem ítölsku skórnir meiða þig...!


» 3 hafa sagt sína skoðun

10.06.2008 10:26:37 / sjukralidinn

AHA

Það var einu sinni vaxtaræktarmaður sem tók allt í einu eftir því að hann var svo hvítur á typpinu miðað við búkinn þannig að hann rauk niður á strönd mokaði yfir sig sandi nema hvað hann lét lillann standa upp úr.
Koma þá þarna tvær áttræðar kerlingar sem eru á heilsubótargöngu á ströndinni,og kemur önnur auga á þetta þarna upp úr sandinum , pikkar í hina og
segir:
Þegar ég var 12 þá var ég hrædd við þetta, tvítug þá langaði mig að prófa, þrítug þá naut ég þess fertug þá bað ég um það, fimmtug borgaði ég fyrir það, sextug þá dreymdi mig um það sjötug þá lifði ég í minningunni og nú þegar ég er orðin áttræð þá vex þetta villt.


» 4 hafa sagt sína skoðun

05.06.2008 10:52:20 / sjukralidinn

Farsdag og grundlovsdag

Jæja best að skrifa smá hérna, þ.e. eitthvað annað en brandara.

Alltaf nóg að gera á þessum bæ, vinna, þrífa , þvo þvott, elda, horfa á sjónvarpið, fara í heimsóknir,fara í afmæli, fara í matarboð. Og svo náttúrulega aðalmálið hugsa um synina og kallinn, það er reyndar lítið mál með eldri soninn þarf bara að hugsa um hann og ekkert annað meira mál með hinn soninn og kallinn þar þarf maður að gera meira en bara hugsa.8)

annars gengur lífið sinn vanagang, Tristan fór að vinna fyrir Sloth Möller í morgun, launin voru leir :haha:

Ætla að grilla kanínu heima hjá Stínu í kvöld.
Fer í 101 árs afmæli á laugardaginn strax eftir vinnu
 Er voða löt að skrifa núna er búin að sita hérna við tölvuna og gera budget og skrifa hjá Tristani þannig að þetta verður að duga núna

knus og góða helgi



» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7
Dagsetning
21. mars 2010
Heimsóknir
Í dag:  7  Alls: 33046
Klukkan
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 23 janúar
Leitarbox

Myndaalbúm
Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti